Áróðursbréf
Pabbi minn fékk sent bréf frá Framsóknarflokknum um daginn, nota bene hann er ekki skráður í flokkinn og hefur aldrei verið skráður. Ekki nó með að hann hafi fengið frá þeim bréf þá var verið að bjóða honum á opnun kosningarskrifstofu þeirra. Oki allt í lagi með það nema að hann er náttlega ekki skráður hjá þeim.
Nei bréfið er skrifað á pappír merktu Alþingi og í umslagi merktu Alþingi og póstlangt af alþingi. Er þetta siðlegt ? Ég bara spyr. Það þykir mér ekki.
Ég veit að flokkar fá hluta af sínu fé frá Alþingi, en er sá hluti í því að prenta út boð á opnun kosningarskrifstofu á opinbert blað frá Alþingi?
Mér finst þetta lélegt satt best að segja !!!!!!!!
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home