Nothing new
Nei, bara sama gamla, vinna, reyna að læra og borða. Fyndið hvað maður verður vanur því að vera á netinu á daginn, það er svo langt síðan ég hef verið í vinnu þar sem ég kemst ekki á netið nema bara af og til, nema þá kanski að ég sé á fjöllum og þá einhvernvegin er mér alveg sama. Það fyrsta sem ég geri þegar ég kem heim í hádeginu er að tékka á póstinum og lesa visi.is og mbl.is, svo tékka ég meira að segja oft rétt áður en ég fer aftur í vinunna. Maður er nú ruglaður.
Er annars farin að hlakka mega til að fara upp í Helli í sumar, ótúrlegt að það eru bara 6 vikur í Ítalíu og svo bara eftir það er það Hellirinn, vei vei vei. Allir eru velkomnir. Við María verðum þarna tvær ásamt henni Berglindi sætu.
En jæja best að fara að læra, nó á ég nú eftir, úffúffúff.
Bless bless.
1 Comments:
Maður er lygilega háður netinu!
Skrifa ummæli
<< Home