selavi

Jábbs, svona er lífið

föstudagur, maí 04, 2007

Eftir Toshiki Toma

Tekið af Visi.is
Mannréttindi eiga að vera kosningamálÁherslumál í kosningum eru að sjálfsögðu þeir punktar sem hver flokkur telur mikilvæga og tímabært að ræða í kosningabaráttunni. En sum málefni verða sjaldan áherslumál í kosningum, þótt menn telji þau mikilvæg. Slík mál eru t.d. mannréttindamál, friðarmál, flóttamannamál eða jafnréttismál minnihlutahópa í samfélaginu. Þetta er kannski vegna þess að beinir hagsmunaaðilar málaflokkanna eru ekki margir og stjórnmálaflokkarnir einblína á stærri markað, s.s. almenna kjósendur. Þetta þýðir alls ekki að mannréttindamál eða jafnréttismál minnihlutahópa séu lítils virði eða að þau eigi ekki erindi við meirihlutann, því mannréttindahugtakið er jú grundvöllurinn að uppbyggingu nútíma samfélags og án þeirra mun samfélagið fara villur vegar. Ég tel því mikilvægt og nauðsynlegt að kosningastefna og áherslumál í kosningum almennt endurspegli mannréttindahugsjónina og tillitssemi við minnihlutahópa í samfélaginu, þótt þau atriði birtist ekki á beinan og skýran hátt. Ef maður getur ekki séð nein merki um mannréttindahugsjónina í tiltekinni stefnu, verður að álykta sem svo að viðkomandi stefna hafi verið búin til fyrir tiltekin hagsmunahóp sem er annaðhvort í valdastöðu eða meirihluta. Nú langar mig til að vitna í stefnu VG um innflytjendamál sem dæmi. Nefnd Evrópuráðs gegn kynþáttafordómum og mismunun (ECRI) er eins konar „vakt" um mannréttindamál. Hún birti skýrslu sína í febrúar sl., en í henni eru ábendingar um stöðu Íslands í mannréttindamálum innflytjenda ásamt tilmælum til úrbóta, t.d. að tryggja og efla starfsemi frjálsra mannréttindasamtaka að setja raunhæf lög gegn kynþáttafordómum og mismunun, að breyta reglum um tímabundin atvinnuleyfi sem nú eru bundin við atvinnurekendur, að tryggja réttindi erlendra kvenna og barna, að endurskoða 24 ára reglu í lögum um útlendinga, að hvetja innflytjendur til að taka þátt í kosningum. Það eru fleiri áhugaverð atriði í skýrslunni sem ekki verða talin hér. Málið er að næstum allar ábendingar ECRI og tilmæli til úrbóta sjást í stefnu VG. Ekki vegna þess að VG hafi haft skýrslu ECRI til hliðsjónar, heldur reyndist flokkurinn einfaldlega deila hugmyndafræði ECRI. Þess vegna leyfi ég mér að fullyrða að stefna VG t.d. í innflytjendamálum sé stefna sem byggir á mannréttindum. Að lokum vil ég biðja lesendur um að muna að við lifum ekki á miðöldum, þegar mismunandi lög giltu fyrir ólíka samfélagshópa. Hér eru bara ein lög og allir eiga að vera jafnir fyrir þeim. En sú staðreynd að hér séu ein lög þýðir ekki að „framkvæmd laganna" sé ekki mismunandi eftir því hvort um mann í valdastöðu er að ræða eða alþýðumann. Framkvæmd laganna er líka mikilvæg fyrir mannréttindi okkar. Hugsum málið og kjósum viturlega!Höfundur er stjórnmálafræðingur.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

SKEMTILEGT Vinirnir
  • MYNDIR
  • Hilla
  • María
  • Biggi
  • Bryndís
  • Nonni
  • Árni Jökull
  • Mikki danski
  • Eyrún
  • Andri
  • Helga Bára frá Suður höfum
  • Kúbukrakkar
  • Grjótið
  • Bogi í Oz
  • Dísella
  • DísaJóna
  • Guggabogg
  • gunnspito
  • Sólrún
  • Gambía
  • Daníel Árni :)
  • Íslendingur í Mósambík
  • Gerum eitthvað gott
  • Kristín Arna litla frænkan mín :)
  • Ása og Ármann í BNA
  • Guðný frænka
  • Einar Smári Orrason :)
  • Mella sæta
  • Harpa
  • Elín
  • Sigga víðis
  • Sibba
  • 79 Hólmarar
  • Viddi brjál
  • Halla Sif
  • Rauði kross Íslands
  • Ungmennahreyfing Rauða kross Íslands
  • Á flótta
  • Flóttamannahjálp Sameinuðuþjóðanna
  • Útivera
  • Rosaleg saga :)
  • Free Photo Albums from Bravenet.com Free Photo Albums from Bravenet.com

    Powered by Blogger