selavi

Jábbs, svona er lífið

sunnudagur, febrúar 12, 2006

raf rugl

Merkilegt hvað það er fyndið að hitta fólk sem maður er vanur að hitta við aðrar kringumstæður. Var á 112 deginum í gær, og hitti þar nokkra leiðsögumenn og bílstjóra, maður byrjar á því að kinka kolli því maður kannast við andlitið og svo eftir smá stund þegar heilinn er búin að vera á fullu að reyna að finna hver einstaklingurinn er og hvernig í andskotanum ég kannast við hann, áttar maður sig á því hvaðan maður kannast við hann, og oftast var það af fjöllum. Nema reyndar lenti ég í því í gær að það var strákur sem kinkaði til mín kolli og ég kinkaði kolli á móti, mundi eftir að hafa séð hann en ekki hvaðan, og allt í einu voru þeir orðnir tveir, svo ég vissi ekkert hvorn ég kannaðist við. Og er ekki enn búin að átta mig á því hvaðan ég kannast við hann. Svo ef þú lest þetta rugl mitt þá láttu mig vita, og sorrý að ég þekti þig ekki.

Annars var ég bara að glápa á júró í gær, verð að segja að lögin eru nú ekkert æði. En Lagið hennar Regínu fynst mér LANG best, vona svo innilega að hún vinni, en er eginlega nokkuð viss um að hún Silvía Nótt muni fara með sigur að hólmi. Sem er þannig séð fyndið, en samt lagið hennar Regínu er svo flott að það væri synd að hún færi ekki. Held ég kjósi hana í stað þess að kjósa hann Sjonna minn (aðdáandi nr5 ).

Jábbs, annars er ógeðshrollurinn þegar talað er um Davíð O. alltaf að aukast, var að frétta að hann hafi talað um Íraksstríðið sem slæmt bílslys, mér finst það viðbjóður.

En vona að helgin ykkar hafi veirð góð, mín var fín.
Nó að gera í næstu viku.
Knús og kram Þóra :)

2 Comments:

At 9:28 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Kommon, júravísjon er ekki um flott lög heldur sigurstrangleg lög!!! Regína kæmist varla upp úr undankeppninni í Aþenu frekar en Sjonni!!!

Áfram Silvía Nótt!!!!! Til hamingju Ísland!!!!!!

 
At 9:37 f.h., Blogger Thora said...

Niebbs, júró lög eru ekki flott, en mér finst nú reyndar lagið hennar Regínu bara mjög flott, satt best að segja sem er nú bara saga til Mosó, þar sem mér finst júró lög eiginlega bara alltaf MJÖG leiðinelg.

 

Skrifa ummæli

<< Home

SKEMTILEGT Vinirnir
  • MYNDIR
  • Hilla
  • María
  • Biggi
  • Bryndís
  • Nonni
  • Árni Jökull
  • Mikki danski
  • Eyrún
  • Andri
  • Helga Bára frá Suður höfum
  • Kúbukrakkar
  • Grjótið
  • Bogi í Oz
  • Dísella
  • DísaJóna
  • Guggabogg
  • gunnspito
  • Sólrún
  • Gambía
  • Daníel Árni :)
  • Íslendingur í Mósambík
  • Gerum eitthvað gott
  • Kristín Arna litla frænkan mín :)
  • Ása og Ármann í BNA
  • Guðný frænka
  • Einar Smári Orrason :)
  • Mella sæta
  • Harpa
  • Elín
  • Sigga víðis
  • Sibba
  • 79 Hólmarar
  • Viddi brjál
  • Halla Sif
  • Rauði kross Íslands
  • Ungmennahreyfing Rauða kross Íslands
  • Á flótta
  • Flóttamannahjálp Sameinuðuþjóðanna
  • Útivera
  • Rosaleg saga :)
  • Free Photo Albums from Bravenet.com Free Photo Albums from Bravenet.com

    Powered by Blogger