að keyra vinstra megin
Já ég verð að segja að það hafi vanist nokkuð fljótt að keyra vinstra megin, reyndar tók svolítið tíma að setja rúðu þurkurnar ekki af stað þegar ég var að gefa stefnuljós, því það er líka vitlausu megin. Það er allt vitlausu megin. ;)
En málið er að ég var að keyra í fyrsta skipti í rigninu í dag, jebbs það ringdi fyrsta fösutdaginn minn fyrir 8 vikum og svo núna.
En þó svo ég sé orðin nokkuð góð í þessu með að gefa stefnuljós en ekki kveikja á rúðu þurkunum fór allt í kerfi í morgun. vegna þess að ég kveikti alltaf bara á stefnuljósunum. HAHAHA
NÖRD !!!!!
Svo sat ég og veinaði úr hlátri í bílnum. Já maður er vanafastur. Sjáum til hvernig gengur að kveikja á rúðuþurkunum á eftir, reyndar sýnist mér ég varla þurfa þess það er að stytta upp.
en er að fara í heimsóknir. bæjó spæjó.
1 Comments:
Tíhíhí... Lára systir átti í sömu vandræðum þegar við vorum að keyra um í Ástralíu - þannig að þú færð alla mína "samúð".
Skrifa ummæli
<< Home