selavi

Jábbs, svona er lífið

miðvikudagur, ágúst 09, 2006

Tíminn líður hratt

Já það er sko satt, búin að vera hér í Mósambík í 6 vikur. Ótrúlegt segi ég.
En í þessar 6 vikur hef ég haldið mig innan landamæranna en nú er kominn tími á að fara til Suður Afríku, jábbs á föstudaginn fer ég með Jóa Páls til Nelspruit. Planið er að kenna mér á landamærin svo næst þegar mig langar að fara þangað get ég bara hendst upp í bíl og farið. Gott að fara með einhverjum fyrst.
Svo ég ætla að skoða Nelspruit og versla ;) Þar er víst fínt moll, og ég ætla að skoða höfuðljós og web cameru og margt margt fleira :) Fara í bíó og sjá nýja mynd ekki einhverja ELD gamla ;)
Svo er víst rosa góður matur á staðnum þar sem við gistum, ekki það að hér er líka rosa góður matur, nema að ég er enginn sérstakur kokkur ;)
Það hefur gengið bara nokkuð vel að skoða Mapútó og ferðast til skiptis.
Setti annars nýjar myndir inn, reyndar sérst nýjasta myndaalbúmið ekki á forsíðunni, veit ekki alveg afhverju. En það þarf bara að klikka á "albúmin mín" þar er Catembe.
Svo gengur bara vel í vinunni. Enda er samstarfsfólk minn ansi gott. Reyndar var veikindar dagur í dag, held að ég hafi smitað fólk hér um daginn. En vona að allir mæti á morgun og verði búnir að ná sér.
Er byrjuð í protúgölskunni og það gengur svona lala, er svolítið að rugla henni við Frönskuna, ber oft orðin fram með frönskum hreim :) haha. Ruglast líka alltaf á átta, segi alltaf huit, (franska, vitlaust skrifað) ístað oito sem er mikklu nær átta. Maður er klikk :) En þetta er gaman.
Vona að þið hafið það gott.
adeus
caio ;)
Kv Þóra :)

2 Comments:

At 2:53 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Gaman að heyra að þú hefur tækifæri til að skoða þig um!!

Skoðaði nýju myndirnar, mikið er fallegt þarna!

Ef þú ruglast í portúgölskunni mundu þá bara að þú kannt að segja Bomberios!!!

 
At 11:56 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Gott að heyra að þú hefur það gott þarna úti. En það er alveg merkilegt hvað tungumál geta alltaf slegið saman í kollinum hjá manni - ég lefnti einmitt í þessu með spænsku of frönsku...

 

Skrifa ummæli

<< Home

SKEMTILEGT Vinirnir
  • MYNDIR
  • Hilla
  • María
  • Biggi
  • Bryndís
  • Nonni
  • Árni Jökull
  • Mikki danski
  • Eyrún
  • Andri
  • Helga Bára frá Suður höfum
  • Kúbukrakkar
  • Grjótið
  • Bogi í Oz
  • Dísella
  • DísaJóna
  • Guggabogg
  • gunnspito
  • Sólrún
  • Gambía
  • Daníel Árni :)
  • Íslendingur í Mósambík
  • Gerum eitthvað gott
  • Kristín Arna litla frænkan mín :)
  • Ása og Ármann í BNA
  • Guðný frænka
  • Einar Smári Orrason :)
  • Mella sæta
  • Harpa
  • Elín
  • Sigga víðis
  • Sibba
  • 79 Hólmarar
  • Viddi brjál
  • Halla Sif
  • Rauði kross Íslands
  • Ungmennahreyfing Rauða kross Íslands
  • Á flótta
  • Flóttamannahjálp Sameinuðuþjóðanna
  • Útivera
  • Rosaleg saga :)
  • Free Photo Albums from Bravenet.com Free Photo Albums from Bravenet.com

    Powered by Blogger