Helgin
Helgin búin, ágætis og róleg helgi.
Ég og m og p skelltum okkur upp í Stangarholt á laugardaginn til að skoða hvað búið væri að gera og til að fá okkur smá útiloft. Gekk reyndar á með éljum, en það var samt frábært.
Glápti svo á júró með Fanný og Hillu og meira að segja á undankeppnina í Danaveldi líka.
Svo á sunnudeginum skellti ég mér í smá rölt niður í bæ og hitti þar Fanný og Daníel Árna krútt á kaffihúsi.
Skellti mér svo á Misery á Nasa um kvöldið, það var bara ágætisskemtun, reyndar finst mér eithvað skrítið að nota Nasa, já ég veit að þetta var einu sinni leikhús, en núna er þetta skemtistaður og það er svona reykingar, bjór og ælulykt þarna inni, ekkert voða svona notó neitt.
En Ólafía Hrönn er náttlega alveg snilldar leikona og bjargaði hún því sem bjargað var, en hann Valdimar Örn var ekkert neitt frábær, hann var meira að segja eginlega bara lélegur.
En gaman að skella sér á leikrit þrátt fyrir það.
En læt fylgja mynd af eðal bústaðum í Stangarholti, vantar ekki mikið upp á, vei vei vei.
4 Comments:
Eigið þið þennan bústað Þóra?
Ef svo er þá sýnist mér allt stefna i bústaðaferð :)
B
Jebbs, þegar hann verður reddý, þá verður sko bústaðarferð, ekki spurning :)
Kv Þóra
hvernig er það, átt þú ekki líka ? :) Á ekki bara að byrja þar ?
Og svo næst verður það minn.
Flottur bústaður. Til lukku með hann. Við verðum svo að heimsækja hvor aðra í framtíðinni þegar við verðum nágrannar í bústaðbyggð :)
Kv. Fanný
myndar hús... til lukku með þetta! :D
Skrifa ummæli
<< Home