Sest á skólabekk á ný
Þá er maður sestur aftur á skólabekk, gaman af því að kennarinn minn er gamli starfsmannastjórinn minn, reyndar til skamst tíma meðan ég var að leysa af hjá ÞSSÍ.
Mér lýst bara vel á þetta.
Veit samt ekki alveg hvað ég vil gera, hvort ég haldi áfram í þessu, sakar ekki að taka Diplómanámið, þá með vinnu, en svo kanski í eithvað annað, sé til. Hvort það verði Lögfræði í HR, Hjúkrunarfræði við HÍ, Friðarfræði einhverstaðar, eða þróunarfræði einhverstaðar eða bara eitthvað allt allt annað.
Hvað á maður að gera, það er svo helvíti mikið í boði.
Spurning um að setja allt í pott og draga eitt :)
Sé til í lok þessarar annar.
En hafið það gott.
Kv. Þóra :)
3 Comments:
Mæli með að þú kíkir á Latrobe háskólann í Ástralíu en þar er víst hægt að nema mannréttindi :)
Ástralía er snilld, gangi þér vel á skólabekknum.
Erfitt að velja þegar mikið er í boði! En ein spurning - er í alvöru hægt að læra Friðarfræði? Hljómar vel að vera friðarfræðingur. Dr. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir friðarfræðingur. Fer vel í símaskránni :)
Kv Sibba friður
Jebbs, td. við eigum nokkra Friðarfræðinga :)
En held samt að það væri ekkert sniðugt að vera í símaskránni, væri ekki bara verið að hringja út af alskonar fjölskyldu erjum? ;)
Peace out
Kv Þóra :)
Skrifa ummæli
<< Home