laugardagur.
Já í gær var Gay pride í Köben og ég ákvað að skella mér og skoða herlegheitinn. Var reyndar aðeins of sein út til þess að ná göngunni, en sá svona leifar af henni á Strikinu. Fólk klætt í sterka liti, ýkt málað og fjör.
Þar sem ég var seina sein ákvað ég bara að fá mér kaffi og lesa í góða veðrinu.
Um kvöldið skellti ég mér á tónleikana og hitti Steinunni, notaði nýja löglega lestarkortið mitt, þar sem ég var víst búin að svindla mér í lestina alla vikuna, úbbbsss, búin að nota Zone kortið sem Ása vinkona gaf mér í fullri trú að það væri nóg, þangað til legjandinn minn sagði mér að þetta væri 4 zone en ekki 3. Hjúkkit.. var ekki böstuð. Smá svona byrjunar örðuleikar, en Ása þú bjargaðir mér nú samt heila viku með þessu korti :)
Fór svo með henni á Joline sem er skemmtistaður í bænum, þar sem hún var að mála barþjónanna í tilefni dagsins :)
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home