Vá ég get sko ekki beðið, hlakka svo til að fara upp í Landmannalaugar. Ætla að fara á föstudagsmorginum með rútunni. Massa fílingur bara að fara einn, minnir mig bara á það þegar ég var að fara að vinna þarna fyrst, þá fór ég ein, reyndar vissi e´g þá ekkert með hverjum ég væri að fara að vinna, sem kom svo í ljós að þeir væru snillingar, Andri og Helgi, bestir og svo María í Hrafntinnuskeri, gæti ekki hafa verið betri hópur. Var reyndar í MASSSSA ljótu FÍ peysunni minni, og satt best að segja held ég að ég hafi aldrey farið í hana eftir þann dag. Samt fór það ekki framhjá mörgum að við værum skálaverðir á staðnum þó svo við værum ómerkt.
En vinna á morgunn og hinn, svo LANDMANNALAUGAR.
Er að fara að hitta leiðsögu stelpuna sem var með okkur úti í Austurríki, það verður gaman. En svo eru krakkarnir að fara til Póllands á fimtudaginn, úff hvað ég væri til í að vera að fara. En svona er þetta, það er ekki hægt að gera allt sem maður vill eins og ég segi á hverjum degi í vinunni næstum því við krakkana.
Selavi.
En hafið það gott, ætla að fara að lesa Hvítu ljóninjuna.
Kv. Þóra
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home