Hvað gerist næst ?
Jábbs, á föstudaginn var Landsfundur URKÍ og nýr formaður og ný stjórn kosin, svo já ég er ekki lengur formaður Ungmennahreyfingarinnar. Ég var formaður í 2 ár og starfaði í Fulltrúaráðinu í 3 ár fyrir það, svo ég hef verið þarna í 5 ár núna. Það er skrítið að hætta. En að mörguleiti er það gott, það verður gott að fá nýtt blóð, nýjar hugmyndir. En eins og ég sagði frá í síðasta pistli þá er ég engan vegin hætt í Ungmennastarfi, nú færist það bara á alþjóðavísu, jábbs, næstu tvö árin fer sá tími sem ég hef eitt í formannavinnu fer nú í evrópu vinnu, svo þetta er gaman.
Annars var aðalfundur RKÍ á laugardaginn og þar fengu tvö verkefni heiðursskjöl, og bæði voru þetta verkefni innan Ungmennadeilda, svo ég er mjög ánægð með það :)
Ekki var mikið lært í gær, æææ en búin að vera dugleg í dag. Dagurinn fór allur í aðalfund og svo var Steinunn snillingur að útskrifast, til hamingju og við skeltum okkur í útskriftarveislu til hennar. Það var gaman, svo fórum við nokkur í mat með aðalfundarfulltrúum og ég dansaði við Formanninn og fleiri snillinga. Það var mjög gaman.
En nú er það læra læra.
Hafið það gott.
Kv Þóra
3 Comments:
bíddu.. ertu að útskrifast??
Einhvertíma, vonandi í júní, klára allavega ritgerðina núna ;)
"Einhvern tímann vonandi í júní" þú stefnir á útskrift í júní og engar vöflur með það, nema kannski með rjóma í útskriftarveislunni.
Skrifa ummæli
<< Home