selavi

Jábbs, svona er lífið

fimmtudagur, apríl 13, 2006

loka augunum

Ef ég loka augunum þá er eins og allt sé svo notalegt, ligg upp í bóli og loka augunum, hlusta á fuglana syngja, og svona, þá get ég líka ýmindað mér að það sé ekki borðstofuborð inni í herberginu mínu og ekki sokkakörfur og ekki bara FULLT af drasli sem á ekki að vera þar. Málið er að það er verið að skipta um hita lagnir, þær voru við það að fara að leka, ekki gott. Planið var að vera búnir á mánudaginn eða þriðjudaginn, svo við hefðum tíma til að þrífa og gera allt reddý fyrir páskana. HIM.... NEI það er ekki allt reddý, það er eginlega allt út um allt og fínt ryk yfir öllu, ekki alveg eins og maður hefði viljað hafa páskana. Svo þá verður maður bara að loka augunum, ekki satt ??
Annars er ég búin með minn skerf af góðverkum í ár.
Var að labba heim eftir vinnu í gær og mætti þar gamalli konu sem var ný sest á bekk, bar konan plastpoka fullan af mat og var greynilega orðin þreitt. Ég byrjaði nú á því að labba framhjá, en sneir svo við og spurði hvort hún væri að fara langt og hvort ég ætti ekki að bera fyrir hana pokann og labba með henni. Júbbs svo góðverk ársins hjá mér er búið. Hjúkk, það er fínt að vera bara búin með þetta og þurfa ekki að hugsa um þetta frekar.
Fór annars í mat til Gunnhildar og Palla í gær, rosa góður kjulli, nammi namm. Takk fyrir mig.
En jæja best að fara að þrífa það sem hægt er og læra.
Gleðilega páska. Hafið það gott.
Knús og kram Þóra :)

4 Comments:

At 12:17 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Dugnaður í þér stelpa!

Svona þegar maður fer að spá í því - þá er hætti við að ég skuldi víst nokkur góðverk aftur í tímann :S

 
At 10:18 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Gleðilega páska (",)

Ekkert smá flott góðverk hjá þér - lýsir þér vel =)

Kv Sibba

 
At 2:26 e.h., Blogger super-darling said...

er maður nokkur tíman búin að gera góðverk?
En samt flott hjá þér! ;) Svona á fólk að vera...

 
At 9:47 f.h., Blogger Thora said...

Woho, samviskan farin að tala hér.
Ég er allavega búin að gera þetta svo þá er ég búin að gera góðverk, en svo er spurning hvort það sé eitt á ári eða fleiri, en ég tel að minn kvóti sé búin og ef það vill svo óheppilega til að ég þurfi að gera annað þá sé ég til og hugsa málið.

 

Skrifa ummæli

<< Home

SKEMTILEGT Vinirnir
  • MYNDIR
  • Hilla
  • María
  • Biggi
  • Bryndís
  • Nonni
  • Árni Jökull
  • Mikki danski
  • Eyrún
  • Andri
  • Helga Bára frá Suður höfum
  • Kúbukrakkar
  • Grjótið
  • Bogi í Oz
  • Dísella
  • DísaJóna
  • Guggabogg
  • gunnspito
  • Sólrún
  • Gambía
  • Daníel Árni :)
  • Íslendingur í Mósambík
  • Gerum eitthvað gott
  • Kristín Arna litla frænkan mín :)
  • Ása og Ármann í BNA
  • Guðný frænka
  • Einar Smári Orrason :)
  • Mella sæta
  • Harpa
  • Elín
  • Sigga víðis
  • Sibba
  • 79 Hólmarar
  • Viddi brjál
  • Halla Sif
  • Rauði kross Íslands
  • Ungmennahreyfing Rauða kross Íslands
  • Á flótta
  • Flóttamannahjálp Sameinuðuþjóðanna
  • Útivera
  • Rosaleg saga :)
  • Free Photo Albums from Bravenet.com Free Photo Albums from Bravenet.com

    Powered by Blogger