Þá er maður bara komin til landsins
Ferðin til Parísar og til Ítalíu var frábær, reyndar var það heldur slæmt að geta ekki sungið, þar sem fyrri vikan var jú kórferðalag þar sem sungið var í Notredame, og fleyri frábærum stöðum, já eða allar sungu nema ég, ég stóð og mæmaði og hóstaði eins og mér væri borgað fyrir það milli laga.
En er svo þreytt núna að ég nenni ekki að skrifa ferðasögu, geri það líklega síðar.
Annars er ég bara að fara að þvo og taka til, og svo er planið að skella sér á fjöll og vera þar. Já Landmannahellir here I come. María og Berglind eru farnar upp eftir og eru búnar að hafa það voða gott, hlakka mikið til að hitta þær.
En vona að þið séuð búin að hafa það gott.
Kv Þóra
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home