hvað er að gerast ??
Er ég að verða skynsöm ?? ÉG bara spyr, því ég ákvað að vera heima og fara ekki með mömmu, pabba og Árna upp í Stangarholt og ég ákvað að fara ekki upp í bústað heldur ákvað ég að vera hér heima og læra. Jábbs, ég varð skynsöm, það er nú ekki oft sem það gerist á mínum bæ. Ó nei, allt of sjalda satt best að segja. En já ég er búin að vera að læra, en ætla núna að taka mér smá pásu og fara á upplýsingafund hjá Vinum Afríku, og skoða hvort það sé eithvað fyrir mig. Það er nauðsynlegt að líta örlítið upp úr bókunum og skella sér út í góðaveðrir, ég læri bara í kvöld, þar sem ég verð ekki liggjandi eins og rúsína í heitum potti. Kv Þóra "skynsama" |
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home