selavi

Jábbs, svona er lífið

miðvikudagur, september 29, 2004

Díses segi ég nú bara, hvað er að gerast ? Jón Steinar orðin Hæstaréttardómari, vá þokkalega ætla ég ekki að fara að brjóta af mér núna, eða him.. kanski að byrja að fara að brjóta af mér núna. Jón Steinar: " Já Þóra Kristín hvað kýst þú ? já þú kýst Ögmund og Steingrím og Kollu og Árna, já já, him. "
Þóra: "Já ég það geri ég."
Jón Steinar: "Við hér í Hæstarétt dæmum þið seka "
Þóra: " HA !!!! en hvernig er hægt að dæma mig seka þegar Sigðuru Kári keyri á mig á gangstétt ? "
Jón Steinar: " Sorrý!!!"

Him kanski myndi hann ekki segja sorrý, efast um það.
En jæja hvað gerist næst, ég held að hann afi hafi rétt fyrir sér ætli vinur hanns Jóns Steinars og vinur hanns Geirs Haarde fari ekki bara í rektorstöðu og hætti þá kanski að kenna. Já Hannes, sá sem var með jóni Steinari í viltu vinna miljón og þeir hringdu í vin sinn Geir til að fá svar við einhverri spurningunni.
Alltaf jafn gamann að búa á Íslandi, ha !!!
Enn og aftur segi ég DÍSUS !!!
PÚ á Geir PÚÚÚ Þú ert GÚNGA!!!!!


sunnudagur, september 26, 2004

PS. Árni Jökull til hamingju með afmælið í dag :)

Jæja þá er kominn sunnudagur og ég komin heim og ætla að fara að sofa, komin tími til held ég bara. Þessi helgi er nú búin að vera mjög áhuga verð. byrjaði á því að gleyma því algerlega á fimtudaginn að ég ætti að vinna á föstudaginn og var búin að segjast mæta á 2 fundi og mæta óboðin í heimsókn til að hitta Helgu Báru, og marg fleira en fattaði svo að ég var að fara að vinna til ellefu. Það er svona að vera utan við sig. díses maður.
En á laugardeginum vakknaði ég um korter yfir 6, jamms að morgin, um helgi, mannréttindabrot ég veit, en svona er þetta samt. Flugslysa æfing, og var mætt rétt fyrir 7 upp í Skógarhlíð til að aðstoða við undirbúning sjúklinganna og svona. Var að skrá niður og svona, nó að gera. Þegar allir voru til og allir skráðir, var brunað á slysstað, það var búið að setja lítinn langferðabíl á hliðina upp í Öskjuhlíð og svo var strætó á hliðinni í nánd við langferða bílinn og svo var flugvéla flak leingra í burtu nær flugbrautinni og svo var kveikt í einhverju drasli, svo Öskjuhlíðin var mekk af reyk. hóst hóst. Ég var að fylgjast með þeim sjúklingum sem voru í langferða bílnum, þau voru helvíti góð. Léku þetta vel. Það þurfti að klippa þu út úr flakinu. Gaman að fylgjast með því.
síðan fylgdist ég að eins með strædónum en fór að lokum upp á Söfnunar svæði slasaðra með sjúkra bíl Skyndihjálpar hópur URKÍ- R var þar að aðstoða, þar ætla ég að vera næst.´ En þar beið ég eftir öðrum sjúkra bíl til að fylgja upp á Fossvogs spítala. Þetta var allt mjög áhugavert. Var svo upp á spítala að fylgjast með, það var nokkuð gamann. Fullt að sætum læknum og svona. ;)
Svo um fjögurleitið komst ég aftur upp í Skógarhlíð til að komast svo heim. Svo ég fór heim tók draslið mitt og upp í Mosó til að taka þátt í " á flótta" leik, sem ég hef ekki tekið þátt í lengi. Það var rosa gamann. Ætla ekki að tala um það hér, þið ættuð að taka þátt í leknum til að vita meira.
Fór svo heim rúmlega að ganga eitt, og fór að sofa. Mæta í kenslu kl 9 morgunin eftir. nema hvað að ég vakknað 8:44 bara svona til að tékka hversu lengi ég get sofið þar til klukkan vekur mig, viti menn þá hafði ég stilt klukkuna á 18:20 um nóttina þegar ég ætlaði að tékka hvort ég væri ekki bókað búin að setja vekjarann á. Svo FOCK!!!!
En mér tókst nú að vera kominn þangað, en ekki með maska eða neitt. Og komst svo að því að það var ekkert á staðnum, til að sýna, ekki gott :( En þetta var nú einn sá erfiðasti hópur sem ég hef kennt, verð ég nú að segja, veit ekki afhverju, hef nú ekkert kent neitt voða mikið en vá. díses. En ætla ekki að fara út í það núna. Þegar ég kom svo heim, þá var ég svo þreitt að ég lagði mig. Fór svo og hitti Maríu og Unni á Vegamótum og við fengum okkur að borða, og fórums vo á leiðinlega bíó mynd sem ég ætla ekki að nefna hér ;) jú jú læt það flakka. Prinsess diaryes 2. jamm fór á hana í bíó. Ekki góð, vissi það nú fyrir svo ég ætla ekki að kvarta.
En best að fara að hætta þessu bulli og fara að skella sér að sofa og klára þessa helgi. Hún er búin að vera hreint út sagt MJÖG áhugaverð.
Hafið það gott, og þið þarna sem ég hitti takk fyrir helgina :)
Kveðja þóra sem er utanviðsig.

fimmtudagur, september 23, 2004

Hæbbs, ég bara verð að monta mig smá, ligg semsagt núna upp í rúmi og blogga, ætti reyndar að vera farin að sofa, var að koma af síðustu næturvakinni minni, já ég veit, er búin að segja þetta áður, en núna er þetta í alvöru, á bara 4 vaktir eftir, vá get ekki beðið.
En ég er semsagt búin að kaupa mér tölvu, massa fín, reyndar auðvita, er eithvað klikk með hana, en auðvita, ég á hana. Það er ekki við öðru að búast, ég get ekki ætlast til þess að kaupa tölvu og að það sé ekkert að henni. ekki ég nei. Svona er þetta bara, ég og tölvur eigum ekki samann. Var reyndar mjög ánægð með hana í nótt, var að horfa á Sound of music. massa fjör.
En jæja best að fara að reyna að sofa smá, því miður er reyndar verið að gera við svalirnar, pabbi hennar Maríu mákonu er hér að múra. Vona að mér takist að sofna.
en hafið það gott.
Kveðja Þóra
ps. ekki rigning, svo það er enginn líklykt.

sunnudagur, september 19, 2004

jæja þá er sunnudagur, og ég að fara að vinna :( Nenni því engan veginn.
En annað mál,þannig er nú þegar það er mikil rigning, þá gýs upp þessi svakalega lík lykt, já þið hugsið, hvernig þekkir hún lík lygt, mamma er sko hjúkka, hún segir þetta líka :)
Þetta er semsagt svona rottnunar lykt, ógeðsleg hreint út sagt.
En nema hvað að þessi lykt kemur af loftinu, sem á eftir að gera við, það er eins og það var fyrir 50 árum síðan þegar húsið var byggt, svo við vitum ekkert hvað getur leinst þarna. Er nú búin að fara nokkrar könnunar leiðangar til að skoða þetta nánar, en ekkert fundið. En ég er nokkuð viss um að Geirfinnur eða einhver annars sem sakknað er er þarna og lætur svona herfilega vita af sér þegar rignir. Nema hvað að þegar maður er einn heima þá heyrir maður alltaf einhvern umganng, einhvern að labba um uppi eða niðri. Og um daginn þegar ég var að segja Maríu frá þessu þá segir hún já þetta er líklega gaurinn sem er fastur í háaloftinu. Ég svona vildi ekki setja tvo og tvo samann en það var ekki hægt að segja neit við því þegar hún sagði þetta svo líklega er þarna einhver.
Svo er líka annað, ég sef semsagt uppi á lofti, og þegar það er rok þá heyrir maður alltaf einhver læti af þakinu. Það var einusinni meiri læti, en það var einhvern spotti sem var laus, en samt heyri ég enn einvhern hljóð.
Og fyrir ykkur sem þekkið mig þá á ég ekkert erfitt með að ýmynda mér eithvað :)
En jæja best að vona bara að það tigni ekki mikið.
Kveðja Þóra

laugardagur, september 11, 2004

Mig vantar einkabílstjóra, ef einhvern vantar vinnu með skólanum.
Þarf að eiga bíl til umráða og alltaf fullan tank, allavega þá hef ég ekki tíma til að taka bensín með viðkomandi.
Hann þarf að geta skroppið frá þegar ég þarf að komast á milli staða.
Hægt er að komast að samkomulagi um laun.
10 kall á tímann.
Kv Þóra

Hæbbs, jæja þá er margt búið sem ég þarf ekki að gera aftur :)
Alþjóðlegusumarbúðirnar, þó þær hafi verið mjög skemtilegar og gengið vel, þá er ég mjög feginn að þær séu búnar, og ég þarf ekki að undirbúa aðrar. Því þær verða næst eftir 2 ár, ef þær verða og þá verð ég ekki lengur formaður URKÍ.
Já þær voru mjög skemtilegar, tæplegar 30 manns, allir tilbúnir til þáttöku, frábær hópur frá 8 löndum. Já ég er rosalega ánægð með þetta :)

Svo annað sem ég er mun fengari með og það er það að ég þarf ekki að taka fleiri næturvaktir, því ég er að fara að hætta eftir nokkra daga á sambýlinu, og þær vaktir sem ég á eftir eru ekki næturvaktir, reyndar verð ég að vinna mjög mikið þangað til ég hætti. Tel bara niður.

En ætla að fara að gera eithvað, svo er partý í kvöld, þarf að fara að búa til sögu um glóðuraugað mitt.
Lifið heil.
Kveðja Þóra :)

SKEMTILEGT Vinirnir
  • MYNDIR
  • Hilla
  • María
  • Biggi
  • Bryndís
  • Nonni
  • Árni Jökull
  • Mikki danski
  • Eyrún
  • Andri
  • Helga Bára frá Suður höfum
  • Kúbukrakkar
  • Grjótið
  • Bogi í Oz
  • Dísella
  • DísaJóna
  • Guggabogg
  • gunnspito
  • Sólrún
  • Gambía
  • Daníel Árni :)
  • Íslendingur í Mósambík
  • Gerum eitthvað gott
  • Kristín Arna litla frænkan mín :)
  • Ása og Ármann í BNA
  • Guðný frænka
  • Einar Smári Orrason :)
  • Mella sæta
  • Harpa
  • Elín
  • Sigga víðis
  • Sibba
  • 79 Hólmarar
  • Viddi brjál
  • Halla Sif
  • Rauði kross Íslands
  • Ungmennahreyfing Rauða kross Íslands
  • Á flótta
  • Flóttamannahjálp Sameinuðuþjóðanna
  • Útivera
  • Rosaleg saga :)
  • Free Photo Albums from Bravenet.com Free Photo Albums from Bravenet.com

    Powered by Blogger